Haustfundur EVS 2026
nóvember 24 @ 14:00 - 16:00
Hér með er boðað til haustfundar EVS, Eigna- og viðhaldsstjórnarfélags Íslands.
Fundarboðið er sent á ykkur sem tengiliði EVS hjá aðildarfyrirtækjum, þið eruð vinsamlegast beðin um að áframsenda eins og við á. Mögulegt verður að tengjast í gegnum Teams.
Fundurinn er haldinn hjá Ægi 220, Strandgötu 90 Hafnafirði
Dagskrá:
- Stutt kynning á EVS, Steinar Ísfeld Ómarsson, HS Orku
- Háhitavarmadælur, rannsóknarverkefni prufukeyrt á Íslandi, Sæmundur Guðlaugsson, Baseload
- Flokkun viðhaldsverkefna í viðhaldskerfi, Hermundur Sigurðsson, Landsvirkjun
- Kaffihlé
- Viðhald og rekstur vindorkuvers, fulltrúi frá Landsvirkjun
- Fréttir af vettvangi Evrópusamtakana, EFNMS og nýafstaðinni BEMAS ráðstefnu, Guðmundur Jón Bjarnason DMM Lausnum
- Viðhaldsstjórnun, námskeið og evrópsk vottun, Guðmundur Jón Bjarnason DMM Lausnum og Ásmundur Jónsson Alvotech. Námskeið haust 2027 kynnt, áherslur og útfærsla á spennandi námskeið. Nýkrýndir EFNMS þekkingarmeistarar og vottaðir viðhaldsstjórar, afhending skírteina.