Námskeið: Eigna- og viðhaldsstjórnun
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, verkfræðingum, verkstjórum og sérfræðingum sem bera ábyrgð á viðhaldi, eignastýringu og rekstraröryggi – í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og þjónustueiningum. Námskeiðið hentar þeim sem eru að hefja störf á vettvangi eigna- og viðhaldsstjórnunar og eins og ekki síður þeim sem hafa öðlast reynslu á þessum vettvangi og vilja bæta enn við og sækja enn meiri þekkingu á þessu sviði.
Lýsing:
Námskeiðið er haldið í samstarfi við EVS – Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands og Idhammar. Það veitir djúpa innsýn í viðhaldsstjórnun með áherslu á evrópska staðla (EN 13306 & EN 17007), bilanagreiningu, eignastýringu og stafrænar lausnir. Kennt er á ensku og námskeiðið samanstendur af þremur hlutum – tveimur staðlotum og einni fjarlotu – með blöndu af fyrirlestrum, umræðum og verkefnum. Hluti af námskeiðsgögnum er íslensk þýðing á völdum stöðlum (ISO 55k, EN13306 og EN 17007) sem eru mikilvægir sem slíkir og einnig til að brúa á milli enskunnar og íslenskunnar. Innifalið í námskeiðinu er próf sem tekið er í lok námskeiðsins og veitir evrópskt þekkingarvottorð í viðhaldsstjórnun, EFNMS PASS. Daginn eftir að námskeiðinu lýkur geta þátttakendur, að uppfylltum vissum skilyrðum, einnig tekið próf sem veitir evrópsk færniskírteini í viðhaldsstjórnun, EFNMS CERTIFICATION, það próf er ekki innifalið í verði námskeiðsins.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu og hagnýt verkfæri í nútíma viðhaldsstjórnun og eignastýringu, og verði færir um að bæta árangur viðhaldsstarfa með stefnumótandi hætti.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Evrópska viðhaldsstaðla (EN 13306 & EN 17007)
- Bilanagreiningu og áreiðanleika
- Viðhaldsstefnur og TPM
- Iðnaður 4.0, kostnaðargreining og upplýsingakerfi
- Breytingastjórnun, öryggi og stafrænar lausnir
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilja lykilatriði viðhaldsstjórnunar og eignastýringar
- Geta beitt alþjóðlegum stöðlum í daglegu starfi
- Kunna að nýta stafrænar aðferðir og greiningartól
- Hafa undirbúið sig fyrir EFNMS vottun
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er kennt á ensku af sérfræðingum frá Idhammar. Próftaka fyrir EFNMS CERTIFICATE er ekki innifalin í námskeiðsgjaldi og verður auglýst sérstaklega.
Skipulagning námskeiðsins:
- Hluti 1 (1.-2. september, Vatnagarðar 20, heilir dagar): Grunnstoðir viðhalds, EN staðlar, áreiðanleiki og bilanagreining.
- Hluti 2 (15.-16. september og 22.-23 september, fjarnám, hálfir dagar): Viðhaldsstefnur, TPM, iðnaður 4.0, kostnaður og upplýsingakerfi.
- Hluti 3 (5.-6. október, Vatnagarðar, heilir dagar) Stefnumótun, breytingastjórnun, öryggi og stafrænt viðhald.
Hagnýtar upplýsingar:
- Lengd: 48 klst.
- Umsjón: EVS, Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands og Iðan
- Kennarar frá Idhammar
- Staðsetning: Iðan fræðslusetur, Vatnagörðum 20 og Zoom (fjarnám)
- Almennt verð: 590.000. kr
- Verð fyrir starfsmenn aðildarfyrirtækja EVS: 490.000. kr
- Verð fyrir félagsaðila Iðunnar: 340.000. kr